*Vits er þörf, þeim er víða ratar!

Frk.Grjón

27.09.2007 22:15:18 / grjona

Aevintýrid mitt heldur áfram....

www.123.is/grjonapungur

Myndir og allur pakkinn á sama stadnum! ;) hversu einfalt verdur lífid¿?

Komid med í thetta ferdalag! ;*

Hanna Jóna


» 2 hafa sagt sína skoðun

22.09.2007 19:47:31 / grjona

Hasta la vista = BABY*

Hola dúllurassarnir mínir! ;*
Ég geri mér enga grein fyrir thví hvad thad lídur langur tími á milli blogga hjá mér! Tíminn gjorsamlega flýgur áfram og ég veit ekki lengur hvad ég heiti.. Kannski smá ýkjur med ad vita ekki nafnid, en samt, hefdi ekki getad trúad thví ad thetta myndi lída svona hratt..

Vorid byrjadi formlega í gaer, og thad var frí í skólanum og allir krakkarnir í baenum á svipudum aldri og ég fóru á mótorhjólunum ad á sem er rétt hjá Pavón og vid fórum í svona Pik Nik... frekar kósý ;)
Svo er alltaf bara brjálad diskó fjor á fostudogum og laugardogum, stundum á sunnudogum líka.. alveg klikkad lid hér veeenur.. thad er allavega aldrei "kannski" diskó, thad er bara alltaf, og thad er alltaf jafn gaman.. Var einmitt á diskói til 7 í morgun og annad í kvold..

Hmm..ég verd ad segja ykkur frá stelpu sem er med mér í bekk! Thetta er semsagt hún Denise, eina manneskjan í skólanum (utan vid enskukennarann) sem talar ensku! og hún nýtir sér thad hist og her og labbar stundum upp ad mér og skýtur á mig setningum á bord vid "What the hell do you think you`re doing"?? "Why did you came to Argentina, no one likes you here, why don`t you just go home"? svo daemi séu tekin, frekar asnaleg gella thar á ferd..Svo á hún thad til ad standa upp í midjum tíma og taka einhver thvílík karate spork úti loftid bara eins og enginn sé morgundagurinn! alveg klikkud! Til ad toppa thennan ósid thá situr hún alveg upp vid kennarabordid og madur getur stundum séd sleftaumana á milli hennar og kennaranna! Frekar ógedfelld "gella" . . Lýsingin er ekki búin!
Til ad toppa thetta allt, thá er hún LESBÍA! og hún gekk meirad segja svo langt á fostudaginn sídasta ad spyrja mig hvort ég vaeri lesbía!!?¿¿ Ég hélt nú ekki!
----Sem betur fer thá laet ég thetta ekki hafa áhrif á mig, thad hata hana hvort sem er allir.. Og ég er búin ad paela mikid í thessu, og held ad thetta sé af thví hún er skotin í mér.. Hljómar asnalega, en ég er alveg búin ad taka eftir thví ad hún er búin ad maela mig út og líka hinar stelpurnar í bekknum! Thvílíkur vidbjódur!!!

Úff, thungu fargi af mér létt..

Aaa ég er alveg tóm núna.. veit ekkert hvad ég á ad segja ykkur..Aetla bara ad cut-a á thetta núna.. Lokahóf Volsungs í kvold! oh hvad mig langar ad vera med;) En bara naest...

HEY!! EITT ALVEG THVÍLÍKT MIKILVAEGT! ÉG ER AD FARA AD HITTA HINA SKIPTINEMANA Í RÓSARIO 30 SEPTEMBER OG FORELDRAR OKKAR LÍKA! OG ALLIR EIGA AD KOMA MED EITTHVAD AD BORDA SVONA TYPICAL!?¿ OG ÉG VEIT EKKI UM NEITT ÍSLENSKT TYPICAL.. MÁ VERA HVAD SEM ER, MATUR, KAKA, BARA EITTHVAD, HELST EITTHVAD EINFALT FYRIR MIG TAKK!
FYRRVERANDI SKIPTINEMAR, POR FAVOR HJÁLP! ALLIR SEM VETTLINGI GETA VALDID! ;)
MUCHAS GRASIAS ;*

En ég enda thetta á nokkrum myndum í dag ;)
Hasta la vista = BABY!!

Stelpurnar í afmaelinu hennar Moru (Mara) ;)

Julián og Hanna!

Alexio, Hanna og Gustavo Ferreri (fraendi minn)

Aldy og Hanna! ;)

Ferdalangarnir 7 í upphafi aevintýrisins! ;)



Chau, Hanna ;**


» 18 hafa sagt sína skoðun

10.09.2007 22:24:57 / grjona

Feeeliz

Buenos tardes mi amigos y amores! J

Ætli það sé ekki komið að smá pistli.. ótrúlega gott samt að vera svona lítið í tölvunni.. það er ekkert mál að afvenjast netheimum.. en maður verður nú að kíkja annað slagið og láta vita af sér.. er það ekki..

Hér er alveg blússandi rigning og þrumur og eldingar! Frekar svalt, lætin í rigningunni hér! Þetta er sko enginn úði, meira svona eins og hellt sé úr fötu! Jafnvel fötum!

Það er svo margt öðruvísi hér og  á Íslandi, ég má t.d. ekki taka vini mína með mér inní herbergið mitt, þó það væru bara Aldy eða Mara! Hér situr maður bara í eldhúsinu, jafnvel með foreldrunum líka.. krúttlegt! Fjölskyldurnar eru miklu nánari hér heldur en heima, þú situr kannski við matarborðið í 2 klukkutíma, bæði í hádeginu og svo líka í kvöldmatnum! Ekki að það sé slæmt, hlutur sem er bara að venjast..
Hér mætir enginn á réttum tíma, nema litli krúttlegi Íslendingurinn Hanna.. það er erfiðast af öllu að venjast því.. krakkarnir segjast kannski ætla að koma til mín klukkan 2 en þau koma sjaldnast fyrr en hálf 3- 3 ... Hryllilega pirrandi!
-----En þetta er allt saman partur af þessu ævintýri, aðlagast öðrum menningarheimi.. (hljómar fullorðið;)

Hey, ef ykkur dreymir um endalausa athygli og frægð, þá skuluð þið fara sem skiptinemi til Suður-Ameríku, ekki skemmir fyrir að vera Íslendingur, með blá/græn augu, svo ég tali nú ekki um ljóst hár! Ég væri örugglega farin að gefa eiginhandaáritanir ef ég væri ljóshærð.. En okey, ekki alveg það sem ég var að sækjast eftir.. Þetta kann að hljóma egó, en þið eruð vinir mínir og ég verð bara að deila þessu með ykkur..plús það að ykkur langar pottþétt að vita þetta..
T.d. í gær, þá var ég bara ein á sunnudags göngu með iPodinn minn, þá stekkur kona í veg fyrir mig, kona sem ég hef aldrei séð áður, og segir mér að koma inn til sín.. ég þorði ekki öðru, og fór inn, þar voru ábyggilega 10 manns, sem að ég vissi ekkert hverjir voru, hafði séð nokkra þeirra áður, en þau vissu ábyggilega allt um mig, og spurðu mig svo bara og spurðu þangað til þau voru klár á því að vita allt! Frekar spes..
Svo hélt ég áfram göngu minni, og litlir krakkar kalla alltaf bara “Hanna- Hanna- Hoooolaaa” okey, það er frekar krúttlegt..Og allir eru bara að reyna að bjóða mann velkominn í bæinn..
Og við skulum nú ekkert ræða diskóin.. það yrði efni í heila bók..

Jææææja, yfir í annað, ég var búin að segja ykkur hvað allt er ógeðslega ódýrt hérna! Ég vissi samt ekki að það væri allt svooona ódýrt! Ég keypti mér í fyrradag, tvo frekar flotta sumarboli, svona eins og þú myndir kaupa í töff föt, ekki svona minjagripaboli! Og eitt svona stórt “gull”armband, og ég borgaði heilar 1380 kr. Fyrir það! Ég myndi nú telja það vel sloppið!

Spænskan, gengur bara miklu betur en ég átti von á.. ég er farin að geta sullað saman í glæsilegar setningar, og skil meira á hverjum degi, sem er auðvitað snilld! Spænska er ekkert smá fallegt tungumál, hef hugsað mér að halda spænsku námskeið í þekkingarsetrinu þegar ég kem aftur heim! Skráning verður auglýst síðar, látið vita ef þið hafið áhuga fyrir þessu.. er meirað segja farin að geta átt samskipti við mömmu mína, sem er betra, og ég kann betur og betur við hana með hverjum deginum, virkaði svolítið bitchy fyrst, en hún skánar sú gamla! ;)
Ég er ógeðslega ánægð að hafa valið land þar sem ég þarf að læra nýtt tungumál, gæti ekki hugsað mér að vera bara að tala ensku allan daginn, því tungumálið er stærsti parturinn af þessu, og það er ótrúlega gaman og líka erfitt að vera einn út í heimi að reyna að tjá sig á tungumáli sem ég kunni ekki að telja uppað tíu fyrir 5 vikum! ;)

Uppáhalds mamma mín sendi mér tölvupóst í gær og sagði mér að Kato John væri seldur! Já, það tókst! ;) hver átti von á því að þessi elska myndi nokkurntíman seljast! Núna lifir hann í minningum okkar, og að eilífu!  En hann er nú samt ekki farinn langt, hann færði sig yfir á Álfhólinn, þannig maður heilsar upp á kallinn þegar maður kemur heim í heiðardalinn!
En hinn eini sanni Kato John, Úganda búi og svertingi með meiru, er sennilega sprellandi kátur í Afríku þessa stundina! Ekki að spyrja að þessari elsku! Haha..

Annars gengur lífið bara frekar vel fyrir sig hérna megin, aðeins of mikill frítími.. hef aldrei sofið svona mikið á 5 vikum eins og ég er búin að gera undanfarið, þó að rúmið mitt sé nú ekki upp á marga fiska..
Þetta kann að hljóma allt rosalega gaman hjá mér, og það er það, en ekki gleyma því, að þetta er rooosalega erfitt líka! Ég sakna allra alveg rosalega mikið, og það getur verið svolítið erfitt.. En ég er ekkert að tala mikið um það, það gerir það bara erfiðara.. En ég veit líka að ég verð komin heim áður en ég veit af, og þá fer allt í sama farið aftur, svo ég ætla að njóta þess meðan ég get..

Annars vona ég bara ad thad sé allt gott heima! ;)
Bid bara ad heilsa ykkur í bili, aetla ad fara ad setja inn myndir!

Chao
-Hanna Ferreri

» 26 hafa sagt sína skoðun

06.09.2007 19:58:02 / grjona

Hola mi amor!**

Elsku dúllur og rassar!
Nú getum vid loksins átt samskipti í gegnum síma, thad er ad segja ef thid tímid thví.. en tid getid thá hringt í heimasímann og spurt um Honnu! ;)

Nr.:00543469491183

Thad vaeri ekki leidinlegt ad fá upphringingu frá thér einn daginn! ;)

Annars gengur allt bara vel, er búin ad vera ad kafna úr hósta á naeturna núna undanfarid,og fór til einhverrar konu í gaer og fékk sprautu í rassinn!! og svei mér thá ef hún er ekki ad virka!! Argentínumenn kunna sko á hlutina!!

En jaeja.. nenni ekkert ad blogga núna!!

P.s. Elísabet, ég fékk bréfid frá thér í dag!! :* thad gladdi mig mjog mikid!! nennidi hin líka ad senda mér bréf :D ég er byrjud ad skrifa bréf á fullu..

P.p.s. Huld! til hamingju med afmaelid í gaer! ;* vona ad smsid hafi skilad sér.. Feliz cumple!!

Knús í klessu..
Hanna


» 10 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 23:33:06 / grjona

No me gusta! Para logo- Por Favor!!!

Tökum smá spænsku kennslu á þetta í þessu bloggi! ;)

Buenos dias amigos!(góðan dag, vinir) haha ;) ætla að byrja á því að þakka ykkur hrósið fyrir myndina af ganginum og flugvélinni á myndasíðunni minni! ;) sá það eftir á að ég hefði kannski átt að eyða tímanum á internetinu í að hlaða upp skemmtilegri myndum, því af nógu er að taka! Setti inn slatta af myndum í gær, skrifa undir þær sem fyrst, svo þið vitið um hvern ég er að tala.. Bueno?(okey)

Yfir í annað!
Hvad er ad frétta??
Það er allt magnað að frétta af mér hérna megin á kúlunni! Búnir að vera frekar rólegir dagar undanfarið, sem hentar mér ágætlega.

Trúiði því að það sé rúmur mánuður síðan ég yfirgaf ykkur á Húsavík!! Fyrir mig er þetta búið að líða eins og vindurinn, og ég á bara 10 mánuði eftir.. oh por dioz(guð minn góður)!
Hmm... hvað er eiginlega búið að gerast, ég hreinlega veit það ekki, jú, ég er búin að læra meiri spænsku, og gengur það allt saman bara framar öllum mínum vonum, og ég er bjartsýn á að ná þessu tungumáli, allavega áður en ég kem heim.. jafnvel miklu fyrr! ;)

Svo er alltaf bara skóli, frekar óskemmtilegur, kennararnir frekar misjafnir eins og gengur og gerist bara, einn þeirra er t.d. búin að bjóða mér heim til sín með vini mína í köku og meððí einhverntíman á næstunni, og svo yrða sumir varla á mig og ætlast til þess að ég geti skrifað bara á no time það sem þau lesa upp úr einhverjum skruddum (trúiði mér, það er EKKI leikur einn)... Frekar leiðinlegt það, en ég læt það ekki hafa áhrif á mig..

Snilldar diskó á föstudaginn síðasta..þetta er svo allt öðruvísi en diskó/böll heima. . Hér dansa allir strákarnir, og þá meina ég dansa, ekki bara hoppa í hring.. og þeir dansa við stelpurnar, snúa okkur í hringi og bara voða krúttlegt! ;) mögnuð tónlist líka, Cúmbía!

....Jiddúddamía hvað það er mikið af fallegum strákum hérna.. og það er ekki leiðinlegt að vera eini Íslendingurinn hér á bæ.. Af nógu er að taka!;) Eeeen það er ekki verra..

Elín Pálma, ég myndi fara að krossa í Argentínu á listanum okkar! ;);) *blikkblikk*

Hér er allt alveg alltof ódýrt, allavega fyrir þá sem eru frá Íslandi! Í fyrsta skipti sem við krakkarnir fórum út að borða þá tók ég ( sú gamla) 70 pesóa með mér, sem er held ég um 2000 kall , og krakkarnir “tjúlluðust” við mig, því þetta var alltof mikið, en á Íslandi myndi þetta tæplega duga fyrir stórri pizzu! Hér getur heil fjölskylda farið út að borða fyrir 70 pesóa.. Fékk mér samloku, og hún var ábyggilega eins og tvær samlokur á Íslandi, og ég borgaði 115 krónur fyrir hana, eða 5 pesóa, þarna “græddi” ég 65 pesóa, alltaf að græða..
Bjór í gleri á diskóstaðnum kostar 5 pesóa líka! Og þetta eru ekkert litlar flöskur, ábyggilega 1,5-2 L ...Er ekki klár á því þar sem stelpan er ekki mikið í bjórnum! ;)
Fleiri verðdæmi, pakki af dömubindum kostar 3 pesóa = 69 kr.
Jógúrt dolla, um svona 30-40 kr.
Nike/Adidas/Puma skór, um 4000 krónur.. Spurning um að byrgja sig upp áður en maður kemur heim..

Ég er búin að hiksta síðan ég kom út.. hef aldrei á ævinni hikstað svona mikið! Mamma mín (Chrittina) segir alltaf að einhver á Íslandi sakni mín og sé að hugsa um mig
J ég ætla að trúa því frekar en að einhver sé að baktala mig, eins og við segjum á Íslandi..
Vitiði einhver góð ráð við hikstvandamáli mínu?
Ekki segja mér að drekka nóg af vatni, því ég er ekki búin að drekka annað en vatn, te og mate síðan ég kom út! Gæti verið bara að ég væri að drekka of mikið af vatni! Tal vez..(kannski)

Hmm.. Viktor, trúnaðarmaðurinn minn kom hingað í dag, með annari AFS konu, komu í heimsókn í skólann minn og töluðu við alla krakkana.. og þau komu svo með mér heim og við spjölluðum.. Ég sagði honum að allt væri í góðu lagi, og þá sagðist hann vilja fá að vita slæmu hlutina! Og ég bara fann ekki neitt, fékk samt tár í augun þegar hann sagði þetta, veit ekki afhverju, sagði honum svo að mér finndist erfiðast/mesta breytingin að þurfa að spyrja um leyfi fyrir öllu sem ég geri, t.d. fara á netkaffið, hitta krakkana, bara hvert skipti sem ég fer útúr húsi, en þau eru bara að vernda mig, eru bara ábyrgðarfull, sem er kannski betra, en þetta verður orðið fínt með tímanum, þegar við erum búin að kynnast hvort öðru.. efast ekki um það, en samt, óþægilegt..
Annars er lítið um vandamál hérna megin.. sem er mjög gott..

Já, Viktor var að bjóða mér í afmælið sitt á laugardagskvöldið, og aðrið skiptinemar verða líka þar, í Rósarío, hann er víst bara að verða 20 ára, ekki 28 ára eins og ég hélt, hann gæti nú samt alveg verið 28.. múhaha.. smá misskilningur þar á ferð..
Síðan á Mara afmæli á föstudaginn.. og diskó og fjör og gaman.. ! ;)

Elsku Stefanía! ;* Til hamingju með afmælið 28.ágúst! sendi þér sms, kemur mér ekki á óvart ef þú hefur ekki fengið það L En allavega, vona að dagurinn hafi verið góður, ertu komin með bílpróf?? ;)

Annars þá er ég að hugsa um að fara að segja þetta gott í bili.. Komið nóg af upplýsingum um líf mitt í bili, kannski aðeins of mikið af upplýsingum, en það er svo gaman að skrifa og tala íslensku í huganum, að ég get ekki hætt!
Vona að allt sé gott heima á fróni! Skólarnir að byrja, þvílík stemning! Nýir pennar, og stílabækur, alltaf jafn gaman.. Okey, núna er ég komin yfir strikið í bloggheimum..

Hafið það gott.. og geriði það (por favor) látið vita af ykkur! Veit af vinkonum mömmu minnar hérna t.d. þið þurfið ekkert að vera feimnar við mig! ;) Uno, dos , tres, (einn, tveir, þrír) koma svo!! ;)

ChaoChao, Besar y knús! ;) (Bæbæ, kossar, og knús )
Hanna.J.Ferreri

P.S. Halla Björg! Takk ótrúlega mikið fyrir sendinguna! Þetta gladdi mitt litla hjarta ekkert smá mikið! Færð sendingu frá mér sem fyrst.. og allir sem eru búnir að sjá myndirnar af Jakobi  Gunnari segja bara “Hermoso Bebe”= Fallega barn ;) Hann hefur ekki langt að sækja það frú mín góð! Kysstu hann frá mér!! ;**



» 20 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 17:38:04 / grjona

Tilkynning kaeru vinir.... og njósnarar! ;)

Myndasídan mín hefur hafid storf.. hún er alls ekki uppá marga fiska..en hey, thad eru komnar heilar 10 myndir, og thaer eru ekkert spes skemmtilegar.. en thad tók mig 30 mínútur ad henda theim inn núna.. tíminn er runninn út hérna megin á hnettinum! ;)

Og njósnarar.. látid vita af ykkur! por favor! ;)

www.arriba.bloggar.is

 

Njótid thess litla sem ég hef uppá ad bjóda í thetta skipti :D

Hasta la vista
Hanna


» 19 hafa sagt sína skoðun

18.08.2007 22:54:21 / grjona

Me Gusta me gusta! ;)

Buenos díaz!
Úff langt sídan ég bloggadi, ég hef bara ekki nennt ad eyda tímanum mínum í tolvunni, svo einfalt er thad!
En allavega, ég hef thad stórgott, og er búin ad vera í Argentínu núna í 2 vikur og einn dag, og mér finnst ég vera búin ad vera hér í tvo mánudi!
á laugardeginum fyrir viku fór ég semsagt til Rosario eins og svo oft ádur, og fór á fótboltaleik med besta vini pabba míns og tveimur fjallmyndarlegum sonum hans! 40.000 manna leikvangur og thad var bara algjor snilld!  Ótrúlega gaman..
Sídan leid vikan eins og adrar vikur, skóli klukkan 7:15, hressandi, og svo bara eitthvad dúllu med krokkunum eda fara til Rosario sem ég gerdi einmitt á fimmtudaginn, forum til ad hitta trúnadarmanninn minn, hann Viktor, hann virtist mjog almennilegur náungi, 26 ára porupiltur.. Og ég á eftir ad hitta hann svo med reglulegu millibili, og segi honum oll mín verdandi vandamál, sem ég vona ad verdi engin.. og audvitad líka skemmtilegu hlutina..!

Pavon Arriba Baerinn minn átti afmaeli á midvikudaginn, og líka Emiliano sem er besti vinur minn hér, hann vard átján ára, en ég er ekki klár med baeinn enda langar ykkur ábyggilega ekki ad vita thad! Tetta var Alveg snilldar dagur, orugglega yfir 30 stiga hiti og sól!
Mucho calor! Já, annad gott vid thennan dag! Thad var enginn skóli! Víj

Í gaerkvoldi var svo afmaelispartý hjá Emiliano, pabbi hans grilladi geeedveikt gódan kjúkling, og thad var bara fullt af snilldar fólki! Sídan hlustudum vid á Cúmbía, sem er mjog vinsael tónlist hér í Argentínu, ekta svona diskó/dans/fjor tónlist! Ég tek líka svoleidis med heim
J
Allir donsudu bara af sér rassgatid og strákarnir líka! Donsudu miklu meira en stelpurnar! ;)
Sídan fórum vid á diskó, sem var aldeilis thvílíka snilldin.. nei djók, thad var ágaett! ;)
Ég thurfti ad vera komin heim klukkan 4.. en half fjogur helgina thar á undan, thannig thetta er allt saman í áttina, eftir svona mánud thá tharf ég ekkert ad koma heim! ;) nei djók.. Fjorid á diskóinu er alltaf rétt byrjad thegar Hanna litla Ferreri tharf ad vera komin heim!

Ég svaf svo til 2 í dag, ég get sofid endalaust hérna, og var svo frammi ad tala vid Florencia sem er systir mín, ótrúlega indael, thegar Emi, Mara og Aldy komu og dingludu og voru ad saekja mig út, alltaf gaman ad fá svona óvaentar heimsóknir, minus thad ad ég var enn ógedsleg á náttfotunum.. Eeeeen thad er ekki verra..

Hmmm.. hvad get ég sagt ykkur fleira.. já, ég er semsagt komin med númer, og ég held ad thad sé ekki ad virka ad fá símtol frá íslandi, en ég get hringt, en thad er freeekar dýrt.. en ég get fengid sms frá Íslandi en ekki sent til Íslands, smááá spes, en systir mín hringdi í símafyrirtaekid og their aetludu ad athuga med tenginguna vid Ísland, thetta á ad virka sogdu thau allavega, en já, ég set heimilisfangid og símanúmerid mitt hér til hlidar… og eeeeendilega reynid ad hringja, og svo er alltaf gaman ad fá sms sem madur skilur.. thad er ooof erfitt ad smsast á spaensku strax vid krakka sem kunna svona 5 ord í ensku. . Thannig.. látid heyra í ykkur elsku dúllur og rassar ;*


Myndir… eru aaaalveg ad fara ad birtast.. ég lofa! Tharf ad fara einu sinni enn á netcafé húsid og thá er málid klappad og klárt!
Thetta er bara svo hrikalega lengi ad hlada sig.. ótholandi!


En annars, thá er ekki fleira í fréttum ad sinni, fréttir verda naest sagdar vid eitthvad gott taekifaeri.. orvaentid ekki..

Takktakktakk fyrir gódar kvedjur,
Vona ad Ísland sé ad standa fyrir sínu!
Efast ekki um thad.. Nóg ad gera á Húsavík t.d. fyrir unglinga, eins og alltaf! Frábaert!

kvedja, Hanna Ferreri Stefánsdóttir! ;)

» 26 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 16:38:50 / grjona

Hasta la vista !!

Haehae krúttbollurnar mínar!
Ákvad bara ad láta vita af mér aftur, ég veit ég er dugleg! Madur hefur svoooo mikinn frítíma hér í Argentínu thegar madur er búinn í skólanum klukkan 12:30, og svo vinna krakkarnir bara ekki neitt, og theim finnst svaka skrýtid hvad vid byrjum ung ad vinna heima á Íslandi! En frítíminn er snilld, ég er alltaf ad gera eitthvad med krokkunum, Forum eiginlega á hverjum degi á mótorhjólin theirra, allir eiga mótorhjól, og thau eru alltaf ad bjóda mér med sér eitthvert, og urdu bara svekkt í gaer ad ég vaeri ad fara til Rosario med mommu og pabba og fóru bara ad rakka borgina nidur! Haha,
Vid mótorhjólumst kannski um baeinn fyrst, og forum svo á Plaza, sem er svona svipad og skrúdgardurinn á Húsavík, nema MIKLU minna og bara svona í midjunni á baenum, sátum thar í 3 horas í gaer og drukkum Mate! Sem er ekta Argentínskt, ég skal koma med svoleidis heim og leyfa ykkur ad smakka! Svo tokum vid ordabókina mína med okkur bara alltaf!
Og skiptumst á ad fletta upp ordum til ad geta átt samskipti..

Ég er alltaf threytt! Enda tharf ég ad vakna klukkan 6 og fara í SKÓLANN! Og allir eru alltaf bara Hanna, Hanna, Hanna, spyrja spyrja spyrja og madur veit ekkert í hvada átt madur á ad snúa sér! Og svo eru krakkarnir alltaf ad hlýda mér yfir ordin sem ég er búin ad vera ad laera og allir voda kátir! Svo er madur alltaf ad sjá eitthvad nýtt, og svo talar madur annad hvort á ensku eda spaensku og hugsar á íslensku, sem er reyndar farid ad verda bara of flókid, thannig ég er oftast komin med hausverk á kvoldin! En thad er ekki svo slaemt!

Ég verd ad fara ad drífa í thví ad taka myndir og sýna ykkur.. thyrfti helst ad fara einhvern daginn bara á netcafé hér og graeja thad! Thví ég thori ekkert ad vera lengi á netinu í einu hér heima, thví dúllurnar eru ekki med adsl, svo ad síminn er tengdur vid netid..
Sem minnir mig á thad ad símamálin aettu ad vera komin á hreint í dag eda strax eftir helgina! Ég laet ykkur vita um númerin hér í Argentinu og heimilisfangid bara um leid.

Krakkarnir aetla ad saekja mig klukkan 3 og vid aetlum ad mótorhjólast og drekka Mate!
Sídan í kvold erum vid ad fara saman út ad borda! Vid krakkarnir, og sedan á diskó!! ;) Ég hlakka svo til, Argentínskt diskó hljómar allavega vel! Og sudur-Ameríku strákar kunna sko ad dansa!
Á morgun
  er ég svo ad fara til Rosario til ad horfa á fótboltaleik á einhverjum risa leikvangi thar, vinur pabba míns og synir hans vildu endilega fá Íslendinginn med sér! Thad verdur vonandi gaman!

Ótrúlegt hvad allt hérna er alveg núll vandraedalegt! Mér finnst ég bara hafa thekkt fólkid hér bara í morg ár! Mér lídur allavega aldrei eitthvad vandraedalega í kringum thau! Sem er betra..

En já, allir vilja sjá myndirnar sem ég tók á einnota vélina! ;) og ollum finnst vid svo hrikalega falleg!!! ;) Sérstaklega Berglind! ;) allir strákarnir eda já, bara allir, “Me Gusta” sem thýdir “Mér líkar” kannski ekki gód thýding, en theim líkar Berglind allavega, sem ég skil sko alveg J og sídan spyrja allir hvort ljóshaerdu vinkonur mínar séu med litad hár eda ekki.. skondid!

Hey! Var ég búin ad segja ykkur ad ég fór á Volleyball aefingu um daginn??
J Allavega, thá segi ég ykkur thad núna, ad thad var snilld! Hehe, hljómar ekkert vel! En thetta er alveg snilldar gaman!

En eins og thid sjáid thá hef ég thad í einu ordi sagt FRÁBAERT!
Thad er alltaf nóg ad gera hjá mér, og ég vona ad thetta haldi bara áfram á thessari braut!

Ég er ad hugsa um ad leggja mig, klukkan er bara 13:30 hér!
 Langur dagur framundan!

Takk allir fyrir kvedjurnar! Audvitad sakna ég ykkar líka- eeeen ekkert svakalega mikid! ;) ekki ennthá allavega, sem er betra!

ChaoChao!
-Hanna

» 30 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 01:21:21 / grjona

Hola Argentína

Buenos Dias dúllurnar mínar! ;)Fannst vera kominn tími til ad láta vita af mér!
úff puff! Erfitt ferdalag ad baki, thrjú flug, samtals 16 tímar í háloftunum, og svo náttúrulega bidirnar á flugvollunum! Ég maeli ekki med thví ad ferdast med 2 stórar toskur tegar thú tarft ad hlaupa á milli “terminala” á JFK í New York, í 32 stiga hita! Thad er ekkert létt allavega, en thad hafdist allt saman, heppnin var greinilega med okkur, tví Ási gleymdi passanum sínum bara á einhverju bordi, en fann hann sem betur fer aftur!
Onnur taskan mín vard eftir í Atlanta, tannig ég fékk bara adra teirra í Buenos Aires, en ég fékk hina svo aftur í morgun! Sem betur fer! Thví ‘ll hlýju fotin mín voru í henni, og lyfin mín!
á flugvellinum hittum vid fullt af skiptinemum alls stadar ad úr heiminum, okkur var skipt strax í tvaer grúppur, og var okkur 7 íslendingunum skipt mjog sanngjarnt nidur, ég og Fjóla forum tvaer í okkar grúppu, og hin fimm saman! Hehe..

Thessa helgi vorum vid í svona camp, í riiisa nunnuklaustri, ekkert smá spúkí, rétt fyrir utan B.A. thad var ekkert smá gaman, kynntist fullt af frábaeru fólki og bara voda fjor! Á laugardeginum forum vid svo í sight seen um borgin! Fórum ad grof Evitu Perón (ljótt ad segja tad, en mig hefur lengi langad ad fara thangad) forum á markad, og í lítinn krúttlegan Tangóbae, lobbudum svo yfir einhverja brú sem á ad tákna virdingu fyrir konum, gott med thad! J

Á laugardeginum var mér svo sagt ad ég vaeri komin med fjolskyldu, tannig ad ég fór aldrei til tessarar Lauru! Krúttlega fjolskyldan mín býr í litlum bae eins og Húsavík í ca.45 mínútna akstri frá Rosarío sem er onnur eda thridja staersta borg Argentínu, thetta er semsagt Ferreri fjolskyldan, og thau eru voda indael, brosa bara út ad eyrum og vilja allt fyrir mann gera, pabbinn er faeddur 1953 og mamman Christina 1955, svo á ég bródir sem er 26 ára, og systur sem er 22 ára. Ég er ekki alveg med nofnin á hreinu, en ég reyni ad komast lúmskt ad thví, vandraedalegt ad koma eitthvad ; what´s your name again?
En já, allir tala smá ensku nema mamman, og samskipti okkar eru frekar fyndin, vildi ad ég gaeti sýnt ykkur handa hreifingarnar og thar fram eftir gotunum!

Á sunnudeginum forum vid saman, í rútu, 6 krakkar sem eru í Rosarío fylkinu, vonandi eigum vid eftir ad geta hist oft.. Fjolskyldurnar bidu spenntar eftir okkur á rútustodinni, frekar dúllulegt..

Ég fékk ad sofa út í morgun, og svo fór ég med  “mommu og pabba” ad skoda skólann minn
J pínulítill skóli, og vide rum bara 10 í mínum bekk! En thad er alls ekkert verra, thegar ég kom inn í stofuna voru thau búin ad fondra plakat handa mér sem stód Welcome to Pavda ArribaJ ( sem er baerinn minn) og thau komu oll og kysstu mig og voru svolítid mikid áhugasom um Ísland, eins og allir.. og thau aetla ad koma vid hjá mér í fyrramálid og fara med mér í skólann, híhí, svo budu thau mér med sér á diskó á fostudaginn! Thannig ég vona bara ad thetta séu magnadir krakkar..
Eftir heimsóknina í skólann fór ég med mommu og pabba til Rosario, hittum systur mina sem er í skóla thar og kemur bara heim um helgar. .
Ég fór og keypti afmaelisgjof handa uppáhaldssystur minni, Elsu Dogg
J
sem á/átti afmaeli 6.ágúst..
Sídan vorum vid bara eitthvad ad erindast og forum svo heim í heidardalinn!
Ég held ad Ferreri fólkid sé svolítid vel staett á
Argentínskan maelikvarda, thau eiga allavega frekar stórt hús og tvo bíla, frekar flotta, og voru svo ad kaupa nýja íbúd handa systur minni í Rosario! Thau eru ekki med thrádlaust net, sem er held ég bara betra.. !

Eitt fyndid, allir í Argentínu ganga bara á skónum inni, bara útiskónum, thví thad er svo ógedslega kalt! Ég sit hér í tveimur peysum, STRIGASKÓM, med raudar eplakinnar og ískalda putta, ég hristist af kulda hér fyrir framan skjáinn, en hvad geri ég ekki fyrir ykkur?
Og já! Eitt í vidbót, thegar ég kom fyrst inn í herbergid mitt, var bangsi og Argentínskar smákokur handa mér
J
 En ég er ad hugsa um ad fara ad sofa, krakkarnir aetludu ad koma vid klukkan 7!!

Vona ad thad sé allt gott ad frétta af Íslandi, og fótboltastelpur! Ég er búin ad koma stóru myndinni vel fyrir á náttbordinu mínu! Djofull erud tid fallegar! Thad finnst allavega bródir mínum hér úti!
  Úllalla..

Buenos Noches,
Hanna;*

P.s. Ég er búin ad taka slatta af myndum, og vid gott taekifaeri set ég thaer hér inn..
P.p.s. Stelpur í Argentínu geta ekki aeft fótbolta! Sem sokkar, ég aetla ad reyna ad finna eitthvad annad tá í stadinn!

» 36 hafa sagt sína skoðun

01.08.2007 20:14:26 / grjona

Nú legg ég land undir fót! ;)

Hæhæ elsku dúllur**
Loksins komst ég í tölvu hér í borginni!

En ég ætlaði bara rétt að láta vita af mér! ég mun leggja land undir fót 10:30 í fyrramálið, til ekki minni borgar en New York! þaðan flýg ég svo til Atlanta og síðast en ekki síst til Buenos Aires, höfuðborgar Argentínu..
semsagt stór dagur framundan!
Það var fundur í dag hjá AFS, og þar fengum við farseðlana og allskonar græ, og þar fékk ég einmitt þær langþráðu fréttir, að ég er komin með bráðabirgðafjölskyldu! :)
Kona eða nánast stelpa, fædd 1975, heitir Laura. . og hún vinnur semsagt á skrifstofu AFS í Argentínu, þannig að hún er semsagt bara að redda málunum meðan það verður haldið áfram að leita..og hún á heima í Buenos Aires! þannig það verður ekki leiðinlegt að fá að prufa að búa í svoleiðis stórborg!!

En jæja, ég ætlaði bara rétt að henda inn smá fréttum..
Vona að ég verði með netið "heima hjá Lauru mömmu", og þá mun ég láta vita af mér á fullu ábyggilega.. ætla svo að fá mér einhverja almennilega myndasíðu..

Hverjir ætla að fylgjast með síðunni meðan ég verð úti??

Kastið endilega hlýjum ferðakveðjum til mín.. þær yrðu vel þegnar!**

Knús og kveðja
-Argentínu Hanna!


» 27 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 02:08:26 / grjona

Ein ég sit og sauma..

Hæhæ!
Þar sem ég var búin að lofa bloggi um helgina, þá verð ég að standa við það, kemur sér vel núna, þar sem ég er voðalega andvaka.. kenni því reyndar um að ég sofnaði í tvo tíma fyrr í kvöld eftir að ég kom heim úr vinnunni..

Ég var semsagt að vinna alla helgina, og á EINN dag eftir í þessari vinnu :) það er svo sweet,  ég er búin að átta mig á því að þetta er ekki eitthvað sem ég vil vinna við í framtíðinni! Ég ætla að setja markið aðeins hærra en að raða í hillur. . Alls ekki illa meint til afgreiðslufólks, hvar værum við ef það væri ekki til staðar til þess að raða matnum okkar í hillurnar og afgreiða okkur? sennilega öll með anó allavega.. (anorexíu) . .

Ég er byrjuð að pakka niður, það gengur ágætlega, á samt eftir að redda fullt af drasli á ýmsum stöðum, skila hinu og þessu, endurheimta nokkrar fatadruslur, kaupa gjaldeyri og ýmislegt, þannig að næsta vika á eftir að fara í allskyns stúss og svo ætla ég að njóta síðustu vikunnar með vinum mínum og fjölskyldu! :)
Það verður svo erfitt að kveðja, eeen ég kem aftur, svo þetta reddast alveg! Mér finnst svo leiðinlegt að missa af heilu ári hjá Jakobi Gunnari, hann verður bara farinn að tala og labba þegar ég kem aftur! úff.. En ég meina.. eitt ár til eða frá!
Þetta verður svo gaman! jeij..

Ég hjólaði upp á Botnsvatn eftir vinnu á föstudag, ein með sjálfri mér, og fór svo hringinn líka, ég mæli alls ekki með hringnum á hjóli, það var svolítið vesen á köflum, en það hafðist!
Það er svo fallegt á Botnsvatni, mér leið bara eins og þegar ég var lítil, þegar ég var þarna, enda var þetta nánast mitt annað heimili á sumrin! góðir tímar..

Svo eru bara mærudagar um næstu helgi! ég hlakka alveg ofboðslega til..
Fer svo til Reykjavíkur á mánudeginum eftir candydays, og síðan út á fimmtudagsmorgninum!

Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í kvöld!
Vonast til að sjá ykkur sem flest áður en ég legg í hann! ;)
Og það væri svo ekki verra að fá að vita hver þú ert!

andvöku-kveðja!
Hanna Jóna

 


» 10 hafa sagt sína skoðun

18.07.2007 21:17:44 / grjona

Hjálp!! ;)

Hæhæ!
Heyrðu, ekki búiði svo vel að luma á gömlum sony ericsson eða motorola síma, sem að þið væruð tilbúin að missa frá ykkur í 11 mánuði, gegn vægu gjaldi eða fríkeypis.. ?
Ég nefnilega get ekki notað minn samsung, úti í Argentínunni..
þannig, ef þið eigið eitt stk.síma, eða vitið um einhvern, þá væri vel þegið að fá að vita af því.. :)

Koma svo!
Kv.Hanna, sem fer alveg að fara!

» 2 hafa sagt sína skoðun

10.07.2007 23:35:32 / grjona

takk fyrir , góðan daginn! ;)

Hæhæhæ :)
Ég ætla ekki að afsaka bloggleysið, sumarið er ekki tími tölvunnar og hvað þá bloggsíðna, enda hefur mér fundist frekar dautt yfir bloggheimum undanfarna mánuði! gott með það!

Það er allt að fyllast af túristum hér á Húsavík, og ég held að hver einasti leggi leið sína í Kasko, til að næla sér í eitthvað snarl, það er allavega mikið mikið af túristum búnir að láta sjá sig, en það er bara gaman!;) 

Allavega, ég held að það sé alveg pottþétt að ég sé á leiðinni út, síðasti séns fyrir AFS að segja mér ef ég er ekki að fara er núna á fimmtudaginn, 12.júlí, sem er einmitt afmælisdagurinn minn! :) gaman að því.. þannig ég vona að ég fái ekki eitthvað leiðinlegt símtal, en ég reyndar hef enga trú á því! maður verður að vera bara bjartsýnn á þetta.. góðir hlutir gerast hægt!
Svoleiðis að það eru held ég ekki nema 20 dagar þangað til ég fer frá Húsavík, verð í tvo daga eða þrjá held ég í Reykjavík, að kveðja vini og vandamenn.. Ég kvíði fyrir því að kveðja, ég á eftir að gráta fulltfulltfullt held ég, en það er nú bara eðlilegt myndi ég halda, þetta verður vonandi algjört ævintýri, hlakka líka til að komast aðeins frá Húsavíkinni minni, ég er komin með leið á að allir viti alltaf allt um alla, það er ekkert fjör.. en ætli þetta sé ekki allstaðar svona..
Svo kvíði ég ennþá meira fyrir því að pakka niður! úffúff.. ég er reyndar að laga til þessa dagana í skápunum mínum, er t.d. búin að týna í fjóra haldapoka til að henda, bara einhverju drasli, ekki föt, bara drasl!! ég er/var algjör draslsafnari! Og svo er ég búin líka að týna í nánast ruslapoka af fötum, gæti þessvegna haldið flóamarkað! eeen ég er að hugsa um að sleppa því!

Ég hlakka svo til að komast í hita og sól, nánast allt árið, læra spænsku, og eignast nýtt heimili og vini, það er svo spennandi!

Ég ætla að reyna að vera dugleg að skrifa hér inn meðan ég verð úti, og svo ætla ég líka að vera dugleg á myndavélinni! svo þið getið fylgst með mér! sem ég vona að þið nennið að gera :)

En annars, þá er lítið annað að frétta! fór á útgáfutónleika með Ljótu Hálfvitunum um helgina, þeir eru náttúrulega bara bestir! ég brosi bara þegar ég hugsa um þá, þetta er svo fyndið og hálfvitalegt! alltaf jafn gaman að þeim! ;)

Ég er í fríi um helgina! það verður gaman, langar að halda smá svona afmælis/kveðju veislu. . sé til hvað verður.. svo eru stelpurnar búnar að bjóða mér út að borða og síðan í hvalaskoðun á fimmtudaginn, það verður æði :)  það er alltaf jafn gaman þegar einhver gerir eitthvað svona fyrir mann, og síðan á morgun, ætla amma, amma, afi og amma að koma í kjúllaveislu! :) þannig kannski enda ég í þremur veislum þetta árið, en það er í lagi, ég hélt nefnilega enga veislu í fyrra! ég rúntaði bara :) híhí..

 

En ég ætlaði bara aðeins að losa um hérna, langaði alltí einu mikið til að blogga, segja ykkur kannski ómerkilegar fréttir! .. :) ég veit ekki..

En hafið það bara sem allra best! og viljiði plís láta mig vita þið sem lesið!:) Unnar frændi, og Ágústa Tryggva!;) ég veit þið eruð að njósna..

Kær kveðja,
Hanna, sem verður átján á fimmtudaginn! ;) víj..

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 12:26:25 / grjona

Ajúhú!!

Hæhæ!

Ég er búin að breyta aðeins síðunni, tók hana t.d. úr vetrarbúningnum, það var alltof þungt yfir blessuninni.. En núna er orðið frekar bjart hérna hjá okkur.. Setti líka inn tvo svona niðurteljara.. voða fjör..

Lítið að frétta annars, ekkert ægilega spennandi búið að gerast, fór reyndar á skiptinemanámskeið á akureyri um helgina, það var bara mjög gaman, kynntist fullt af nýju fólki, og ég vona bara að ég fari að fá endanlegt svar sem fyrst. . ég er reyndar orðin ekkert smá þolinmóð af allri þessari bið sem ég er búin að vera að standa í, þannig ég er bara frekar róleg yfir þessu..

svo er ég bara að vinna alltaf alla virka daga og ég er svo að vinna næstu tvær helgar, sem verður stuðstuð.. ef ég er á leiðinni út., þá á ég nú ekki eftir að vinna mikið fram að brottför, það er orðið svo stutt í það..8|

\"\"

Iguazu fossinn í Argentínu! pant fara þangað! ;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

20.06.2007 13:36:39 / grjona

Í sól og sumaryl...:)

Hallóhæ! ;) Úff, alltof langt síðan síðast, og ég veit ekkert hvar ég á að byrja.. hmm..
Júní er að verða búinn, ég get svo svarið það, það er svo stutt samt síðan ég var í prófum..
Ég er búin að vera að vinna bara alveg á milljón síðan þá, liggur við að ég fari að flytja lögheimilið mitt þarna niðreftir, í Kasko.. djók.. en allavega, nóg af úllum til að afgreiða, og vá, það er alltaf jafn erfitt að vísa veginn á vínbúðina..! enda kannski ekki alveg í leiðinni fyrir marga..
Svo eru yfirleitt tveggja tíma langar fótboltaæfingar eftir vinnudaginn, sem getur orðið mikið mikið þreytandi, en þetta getur líka verið fáránlega gaman
J Stelpunum gengur eins og í sögu í leikjunum, rúlla þessu upp, hver af fætur öðrum, ekki að spyrja að ykkur!
Ég fór á ættarmót um síðustu helgi, mitt fyrsta ættarmót, það var ágætt, frekar kjánalegt að þekkja svona fáa úr ættinni sinni, þetta var alvega smá vandró á tímum..
 
ágætis ætt svosem! ;) Ég og Karen kíktum á akureyri á laugardagskvöldinu, semsagt af ættarmótinu sem var á Þelamörk.. og hittum Einar Þór og vini hans, og rákumst síðan á Gísla og Daníel.. voða fjör allt saman! ;) mig langar svo aftur í 10unda bekk þegar ég hitti gömlu bekkjarfélagana sem eru fluttir í burtu, það var náttúrulega bara best! ;) EEEn svona er lífið, við hittumst vonandi oft aftur þegar við verðum í Háskóla í RVK.. víj..

Litla beibeið hennar Höllu og Sigga fékk nafn 17.júní, og fékk hann nafnið Jakob Gunnar! Sem er ekkert smá fallegt ** Til hamingju með það litli&Co... ;*

Ég held að það sé svo eitthvað minna búið að gerast..
Ég er að fara á skiptinemanámskeið inná Akureyri um helgina, sem verður eflaust, þvílíkt fjör! ;) Er því miður ekki enn komin með endanlegt svar, en þetta er allt saman í áttina, og nú er bara að krossleggja fingur áfram og vona það besta, þetta hlýtur að fara að skýrast! Ekki nema 43 dagar í brottför! Jeminn eini! Allt að gerast hérna megin!

En jæja, læt þetta duga í dag.. J
Hafið það gott þangað til næst!*
P.s.Mig langar til Reykjavíkur, og líka í hvalaskoðun þegar það er sólsetur!, vill einhver koma með.. í annað hvort, eða hvorutveggja?!

Brjáluð stuð kveðja, Hanna

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 21